Orkuveitan er eftirsóknarverður vinnustaður þar sem hæft og ánægt starfsfólk sinnir samfélagslega mikilvægum verkefnum í framsæknu og sveigjanlegu starfsumhverfi.
Við byggjum á árangursmiðaðri og fjölbreyttri liðsheild og saman berum við ábyrgð á að skapa menningu þar sem metnaðarfullt starfsfólk hefur burði til að mæta fjölbreyttum áskorunum og fær tækifæri til að vaxa.
Við tryggjum jafnrétti í inngildandi starfsumhverfi sem einkennist af virðingu og jöfnum tækifærum.
Við leggjum ríka áherslu á að vernda og efla velferð starfsfólks. Öll berum við ábyrgð á að koma auga á, meta og stýra hættum í vinnuumhverfinu. Ekkert verk svo mikilvægt eða áríðandi að hætta megi öryggi og heilsu fólks.
Mannauðs-, öryggis- og heilsustefna byggir á gildum og heildarstefnu Orkuveitunnar og er sett fram til samræmis við eigendastefnu fyrirtækisins.
Lykiláherslur mannauðs-, öryggis- og heilsumála
Jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding
Við framkvæmum jafnrétti. Fjölbreytileikinn er styrkur okkar og saman byggjum við inngildandi starfsumhverfi þar sem öll eiga rétt á að tilheyra, vaxa, hafa rödd og njóta trausts.
Heilsa, öryggi, vellíðan
Við eflum öryggi og heilsu með því að stýra áhættum, læra af atvikum, vera sýnileg á verkstað og bjóðum markvissan stuðning við heilsu og heilbrigði starfsfólks
Þróun hæfni til framtíðar
Starfsfólk fær tækifæri til að vaxa, sýna frumkvæði og nýta hæfileika sína til að knýja áfram framþróun í starfseminni sem og samfélaginu öllu. Með framsýnni forystu og fjölbreyttum starfsþróunarleiðum sköpum við lærdómsmenningu til að takast á við áskoranir framtíðarinnar.
Árangursmiðuð liðsheild
Við vinnum sem ein liðsheild. Menningin okkar styður við fagmennsku, skilvirk vinnubrögð og sveigjanleika til að takast á við fjölbreytt viðfangsefni.