Jafnréttisstefna

Jafnréttisstefna er skuldbinding Orkuveitunnar um stöðugar umbætur í jafnréttismálum.

[Stefna lögð fyrir stjórn og samþykkt á stjórnarfundi 31.03.2025]

Jafnréttisstefna er skuldbinding Orkuveitu Reykjavíkur um stöðugar umbætur í jafnréttismálum. Orkuveitan leggur mannréttindaákvæði stjórnarskrárinnar til grundvallar jafnréttisstefnu sinni. Jafnréttisstefna Orkuveitunnar miðar að því að meta einstaklinga að eigin verðleikum og að þeir fái notið jafns réttar. Fyrirtækið vinnur markvisst að því:

  • Að starfskjör fyrir jafnverðmæt störf séu óháð kyni.
  • Að jafna hlutfall kynja innan Orkuveitu samstæðunnar og einstakra fyrirtækja, hópa, sviða, deilda.
  • Að auka fjölbreytni innan fyrirtækja og hópa til að mynda varðandi kynferði, aldur, kynhneigð, trúarbrögð, skoðanir, þjóðerni, kynþætti, litarhætti, efnahag, ætterni og stöðu að öðru leyti.
  • Að gera starfsfólki kleift að samræma sem best einkalíf og starfsábyrgð.
  • Að efla jafnréttismenningu starfsfólks Orkuveitunnar samstæðunnar.
  • Að efla fræðslu og vitund starfsfólks um málefni og áskoranir minnihlutahópa.
  • Að vinna gegn einelti, kynbundnu ofbeldi, kynbundnu áreitni og kynferðislegri áreitni innan fyrirtækisins.
  • Að tryggja fjölbreytni innan hópa á öllum stigum ábyrgðar- og ákvarðanatöku innan fyrirtækisins og tekið sé mið af jafnréttissjónarmiðum við stefnumótun og stærri ákvarðanir.
  • Að tryggja gott aðgengi og vinnuaðstöðu á grundvelli líkamlegs og andlegs atgervis.

Orkuveitan uppfyllir kröfur í formi laga, reglna og reglugerða um jafnréttismál.

Jafnréttisstefnan byggir á gildum og heildarstefnu Orkuveitunnar og er sett fram til samræmis við eigendastefnu.