Stefna Orkuveitu Reykjavíkur (OR) er að mæta þörfum viðskiptavina með því að miðla vörum og góðri þjónustu með hagkvæmum og öruggum hætti.
Stöðugar umbætur, flæði ferla og lífsferilshugsun liggja til grundvallar í allri starfseminni.
Lífsferilshugsun felur í sér heildarferilinn allt frá upplifun viðskiptavinar, upplýsingagjöf og að vinna með hliðsjón af öryggi, hagkvæmni, vistspori og förgun á líftíma.
Orkuveitan leggur sérstaka áherslu á:
- virðisaukandi þjónustu
- faglega verkefnastjórnun
- hagkvæma viðhalds- og eignastjórnun
- skjala- og upplýsingastjórnun
- notkun á tækni til að auka virði og hagkvæmni
Gæðastefnan byggir á gildum og heildarstefnu Orkuveitunnar og sett fram til samræmis við eigendastefnu.
Mæling:
- Ánægja viðskiptavina (stefnumælikvarði)
- Aðrir mælikvarðar heildarstefnu Orkuveitunnar
- Framkvæmd innri og ytri úttekta til staðfestingar á virkni gæðastjórnunarkerfis
Tilvísanir:
SKI-100; Ábyrgðir i vottuðum stjórnunarkerfum.
SKI-205; Gæðastjórnunarkerfi (ISO 9001).